Kennslubók í mannfræði fyrir byrjendur

MannfræðiMannfræði fyrir byrjendur er grunnbók í mannfræði, hugsuð fyrir nemendur á framhaldsskóla- og háskólastigi en getur jafnframt nýst öllum sem hafa áhuga á faginu. Bókin kom út í ágúst 2010.

Í bókinni er fjallað um ýmsar greinar mannfræði og megináherslur kynntar. Leitast er við að gera grein fyrir grunnhugmyndum og hugtökum og tengja við nýlegar mannfræðirannsóknir, bæði hérlendis og erlendis.

Höfundar bókarinnar, Gunnar Þór Jóhannesson og Þórður Kristinsson, eru mannfræðingar sem hafa reynslu af rannsóknum og kennslu í mannfræði á framhaldsskóla- og háskólastigi.